þriðjudagur, 4. desember 2007
Grallaraspói
Saga með gosbrunn. Að skipuleggja prakkarastrik (að sjálfsögðu!). Daman er orðin mikill matgæðingur eftir að hún hætti á brjósti (eins og sjá má) og vön að fá sér kvöld-pela fyrir nætursvefninn. Hér má sjá hana gæða sér á einum slíkum með Einari afa og Köllu frænku. Pressan um setja nýjar myndir á bloggið hefur verið mikil á Litlu fjölskylduna síðustu vikur (sumir vilja meina óbærileg). Það eru því gleðifréttir að þetta er aðeins byrjunin. Fleiri í vændum.








þriðjudagur, 6. nóvember 2007
laugardagur, 6. október 2007
Saga sýnir tennurnar
laugardagur, 29. september 2007
Hoppuróla
Saga verður seint sökuð um lélegan húmor. Eins og Pabbi sinn hristir hún áreynlulaust fram úr erminni skemmtileg prakkarastrik og gamanleiki, sér og öðrum til mikillar ánægju. Hér fyrir neðan má sjá dæmi um gott atriði sem feðginin brugguðu í sameiningu, þar sem Saga bregður á leik í hoppurólunni sinni.



Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)