sunnudagur, 21. janúar 2007

Myndasagan heldur áfram...

Hér eru nokkrar myndir frá ævintýrum Sögu síðustu daga. Komið var að henni í símanum þar sem hún var að reyna smala saman fleiri krílum á Skúlagötuna. Afgangurinn af litlu fjölskyldunni greip inn í, eitt kríli á heimilinu er alveg nóg í bili. Litli Garcia, sem er 3 dögum yngri en Saga, mætti þó galvaskur og dró mömmu sína með. Fleiri fínar frúr létu sjá sig og tveir félagar sem enn eru í mallakút. Alaska útbjó og splæsti stjörnukorti á skvísuna þar sem m.a. kemur fram að Saga er töfrandi persónuleiki, mikil félagsvera og eigi eftir að vinna að heimsmálunum í framtíðinni.






















Saga og mamma í baði

Saga skellti sér í bað með Mömmu sinni. Stúlkunni finnst alltaf jafn notalegt að busla og láta fara vel um sig í heita vatninu.






miðvikudagur, 17. janúar 2007

Mánaðargömul

Í tilefni af mánaðarammæli Sögu var hóað í nokkra góðvini hennar fyrir myndatöku á skiptiborðinu. Hér má sjá, talið efst frá vinstri; Búllu (kanínu sem kemur allaleið frá Búlgaríu), Mustafa (sebrahest úr Hafnarfirðinum), Nínu Karínu (kanínu), Óla Björn (ísbjörn), Rasmus (bangsa), Jóhönnu Sigurðardóttur (hvít-bangsa), Alexöndru Viktoríu (skjaldböku, sem á góðum stundum er kölluð Alla), Kjærleikur (bangsa) og síðast en ekki síst Voffa (rugguhest).

>> PS Svo óskum við litla fjölskyldan Kikku & Bigga hjartanlega til hamingju með litlu dísina þeirra, sem kom í heiminn sunnudaginn 14. janúar.


sunnudagur, 14. janúar 2007

Fjögurra vikna ammæli

Saga orðin fjögurra vikna og farið að styttast í mánaðarammælið, 17. janúar. Hér eru nokkrar myndir frá síðustu dögum nýju litlu fjölskyldunnar - sem fór m.a. í ammæli til Hóffí frænku í Mosfellsbænum þar sem Saga undi sér vel í fangi Langafa og Langömmu, sem söng fyrir hana vísur.













laugardagur, 13. janúar 2007

Þá og nú...

Treyjan með grænu böngsunum, sem var fyrst notuð af Pabba fyrir 30 árum, er komin aftur í notkun. Hér má sjá myndir af feðginunum á svipuðum aldri í treyjunni - og nokkrar fleiri frá bernsku Pabba.


1977









2007








2007










1977












2007













1977










1977










1977










1977

Saga og pabbi í baði

Saga og Pabbi fóru í bað saman og fíluðu það vel. Saga var svolítið hissa við að komast í svona stórt baðkar og skiljanlega nokkuð hugsi yfir því, enda aðeins vön baði í bala. En var annars ánægð með svamlið og virðist njóta sín vel í vatni.