miðvikudagur, 30. apríl 2008

Á Skúlatorgi

Fleiri myndir af Sögu og pabba á Skúlatorgi. Mestmegnis hangs, en líka farið á róló og reynt (árangurslaust) að ná í skottið á kisulóru.















sunnudagur, 27. apríl 2008

Úti að aka með pabba

Stundum fær pabbi að klæða króann og saman skella feðginin sér síðan á rölt. Hér má sjá afraksturinn. Bubman út og svolítið rónalegt 'look'. Sem er reyndar alveg í lagi og vel godkänt á Skúlatorginu. Þannig að feðginin komust upp með pósurnar.



sunnudagur, 20. apríl 2008

Úrvalsvísitalan hækkar

Saga Evudóttir Eldardóttir er mótfallin hækkun stýrivaxta og vill að verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands verði endurskoðuð. Þegar í stað! Hún dauðsér eftir að hafa ekki drifið í framboð hér um árið og leitt Smáfylkinguna til sigurs. Þrátt fyrir að vera fámál um pólitík (sem og svo margt annað) má lesa úr svip hennar bjartsýni og einbeitingu hvað eigin stöðu varðar í hinu pólitíska landslagi framtíðarinnar.


laugardagur, 12. apríl 2008

Video Video!

Nokkur myndbönd af Sögu frá því í febrúar. Hér er hún að standa í eitt af sínum fyrstu skiptum og prufa hliðið sem mamma og pabbi versluðu á Skúlagötuna til að hafa hemil á skottunni (án sjáanlegs árangurs). Youtube Saga er síðan komið í gott form. Þar er búið að setja inn fullt af gömlum og nýjum brotum.


Saga að standa...



Saga bavkið lás og slá...




Saga og græni sófinn...




Hvað er Saga stór..?




Saga með svala...

miðvikudagur, 9. apríl 2008

Á snjóþotu

Saga hjá ömmu og afa í Kópavogi. Fór á snjóþotu, gaf öndunum brauð (stakk samt mestu upp í sjálfa sig), kíkti í heimsókn til ömmu löngu og langafa í Maríugerði og tók sveiflu með prinsessu-töskuna.




















föstudagur, 4. apríl 2008

Er þetta hægt?

Hefðuð þið trúað þessu? Saga díís að bora í nefið og gefla sig framan í myndavélina. Uppreisnarárin byrjuð. Unglingaveikin að hellast yfir króann. Foreldrarnir að gefast upp! Fegurðardísin Karítas heldur uppi heiðri stór-fjölskyldunnar (og Hafnarfjarðar) á meðan ungfrú Reykavík á ekki sjens.